Veigar lagði upp tvö mörk

Veigar Páll Gunnarsson.
Veigar Páll Gunnarsson. mbl.is/Ómar

Veigar Páll Gunnarsson lagði upp tvö marka Vålerenga í kvöld þegar lið hans sigraði Viking Stavanger, 3:0, í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Bojan Zajic kom Vålerenga yfir á 7. mínútu eftir sendingu Veigars. Rétt fyrir hlé komst Veigar í dauðafæri, markvörður Viking varði vel en Morten Berre fylgdi á eftir og skoraði, 2:0. Veigari var síðan skipt af velli á 60. mínútu.

Indriði Sigurðsson, fyrirliði Viking, og Birkir Bjarnason léku allan leikinn með gestunum frá Stavanger.

Vålerenga er nú í öðru sæti deildarinnar með 44 stig en Molde er efst með 52 stig og á leik til góða. Rosenborg er í þriðja sæti með 42 stig og á tvo leiki til góða á Vålerenga.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert