Gunnar Heiðar skoraði í sigurleik

Gunnar Heiðar Þorvaldsson.
Gunnar Heiðar Þorvaldsson. mbl.is/

Eyjamaðurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði mikilvægt mark fyrir Norrköping í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Norrköping vann 2:1 sigur á Elfsborg og er nú sex stigum frá fallsæti.

Norrköping á aðeins einn leik eftir en Syrianska, sem er sex stigum á eftir og í fallsæti, á tvo leiki eftir.

Gunnar Heiðar lagði upp fyrra markið og kom Norrköping síðan í 2:0 með marki á 36. mínútu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert