Sölvi Geir og Ragnar í tapliði

Sölvei Geir Ottesen.
Sölvei Geir Ottesen. Reuters

Íslendingaliðið FC Köbenhavn mátti sætta sig við 2:1 tap gegn þýska liðinu Hannover þegar liðin áttust við í Evrópudeild UEFA í knattspyrnu á Parken í kvöld. Ragnar Sigurðsson og Sölvi Geir Ottesen léku báðir allan tímann í miðvarðarstöðunum hjá dönsku meisturunum.

N'Doye kom FC Köbenhavn yfir á 67. mínútu en Þjóðverjarnir tryggðu sér sigur með mörkum frá Schlaudraff og Stindl á 71. og 75. mínútu.

Standard Liege og Hannover eru með 8 stig í efsta sæti en FC Köbenhavn hefur 4 stig í þriðja sæti.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert