Jón Guðni tapaði stórt í fyrsta leiknum

Jón Guðni Fjóluson
Jón Guðni Fjóluson mbl.is/Eggert Jóhannesson

Jón Guðni Fjóluson lék í kvöld sinn fyrsta leik með Beerschot í belgísku 1. deildinni í knattspyrnu. Ekki verður hægt að segja að Jón Guðni hafi byrjað neitt sérstaklega vel því liðið steinlá fyrir Standard Liege, 6:1. Birkir Bjarnason var á meðal áhorfenda á  Stade Maurice Dufrasne vellinum í Liege en hann gekk sem kunnugt er í raðir félagins í gær en var ekki löglegur með liðinu í kvöld.

Arnar Þór Viðarsson lék allan tímann fyrir Cercle Brugge sem vann 3:1 sigur á Westerlo.

Stefán Gíslason var í byrjunarliði OH Leuven í fyrsta leik sínum með félaginu og lék allan tímann en liðið gerði 1:1 jafntefli Lokeren þar sem Alfreð Finnbogason sat á bekknum hjá Lokeren allan tímann.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert