APOEL Nicosia var rétt í þessu að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu. Liðið hrósaði sigri gegn franska liðinu, 1:0. Framlengja þurfti leikinn en ekkert var skorað í henni en Kýpurbúarnir höfðu betur í vítaspyrnukeppni þar sem markvörður APOEL varði tvær vítaspyrnur.