Fyrrverandi 21 árs landsliðsmaður Ítalíu og leikmaður Livorno, Piermario Morosini lést í dag eftir að hafa fengið hjartaáfall í leik liðsins gegn Pescara í ítölsku B-deildinni. AFP fréttastofan fullyrðir að maðurinn sé látinn en þetta gerðist á 31. mínútu og þá var staðan 2:0 Livorno í vil. Leikurinn var að sjálfsögðu flautaður af.
Ekki er langt síðan Fabrice Muamba fékk hjartaáfall í leik með Bolton gegn Tottenham í ensku bikarkeppninni í knattspyrnu. Hann er nú á öruggum og góðum batavegi.
Morosini var á láni hjá Livorno frá A-deildarliðinu Udinese.