Sölvi Geir Ottesen, miðvörður FC Köbenhavn, og Eyjólfur Héðinsson, miðjumaður SönderjyskE, eru báðir í liði umferðarinnar hjá Sporten.dk eftir leiki síðustu helgar í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.
Báðir fengu þeir 10 í einkunn af 12 mögulegum. Sölvi var á meðal markaskorara FC Köbenhavn í 5:0 útisigri á HB Köge og Eyjólfur var í stóru hlutverki hjá SönderjyskE sem vann Lyngby á útivelli, 4:0.