Aron Jóhannsson virðist vera að hrökkva í gang hjá danska liðinu AGF, en hann gerði tvö af þremur mörkum liðsins í 3:1 sigri á Köge í dag.
Aron hefur því skorað í fjórum síðustu leikjum liðsins og alls fimm mörk í þeim. AGF er enn með í baráttunni um Evrópusætið.
Fyrra mark Arons kom á 18. mínútu og það síðara á 79. mínútu.