Hjálmar ekki með gegn Frökkum og Svíum

Hugað að meiðslum Hjálmars Jónssonar í leiknum í gærkvöld.
Hugað að meiðslum Hjálmars Jónssonar í leiknum í gærkvöld. Ljósmynd/G.Svansson

Hjálmar Jónsson leikmaður sænska liðsins IFK Gautaborg hefur dregið sig út úr íslenska landsliðshópnum fyrir vináttuleikina á móti Frökkum og Svíum sem fram fara í lok mánaðarins.

Hjálmar varð fyrir meiðslum með liði sínum í leiknum gegn GAIS í gærkvöldi og varð af fara af velli eftir 8 mínútna leik. Ekki hefur verið valinn leikmaður í landsliðshópinn fyrir hann.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert