Aron Einar Gunnarsson verður fyrirliði Íslands í fyrsta skipti þegar liðið mætir Frakklandi í Valenciennes klukkan 19. Um er að ræða vináttulandsleik og er landsliðsþjálfarinn Lars Lagerbäck búinn að tilkynna byrjunarliðið.
Byrjunarlið Íslands:
Markvörður
Hannes Þór Halldórsson
Hægri bakvörður
Hallgrímur Jónasson
Vinstri bakvörður
Hjörtur Logi Valgarðsson
Miðverðir
Ragnar Sigurðsson og Kári Árnason
Hægri kantur
Rúrik Gíslason
Vinstri kantur
Gylfi Þór Sigurðsson
Miðtengiliðir
Aron Einar Gunnarsson (fyrirliði) og Eggert Gunnþór Jónsson
Framherjar
Birkir Bjarnason og Kolbeinn Sigþórsson