Kemst U21 ára liðið úr botnsætinu?

Björn Bergmann Sigurðarson er í U21 ára liðinu sem spilar …
Björn Bergmann Sigurðarson er í U21 ára liðinu sem spilar á KR-vellinum í kvöld. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Íslenska U21 árs landsliðið í knattspyrnu verður í eldlínunni í undankeppni EM í knattspyrnu í kvöld en þá etur það kappi við Aserbaídsjan. Leikurinn fer fram á KR-vellinum og hefst klukkan 19.15.

Strákunum hans Eyjólfs Sverrissonar hefur ekki gengið sem skyldi í keppninni en íslenska liðið er með þrjú stig eftir fimm leiki og er í neðsta sæti, stigi á eftir Aserum sem höfðu betur í fyrri leiknum í Bakú í febrúar, 1:0.

Miðaverð á leikinn er 1.000 krónur fyrir fullorðna en frítt er inn fyrir 16 ára og yngri. Einnig er frítt inn fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega og geta þeir framvísað viðeigandi skírteinum við innganginn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert