Gunnar Heiðar Þorvaldsson var á skotskónum þegar IFK Norrköping hafði betur gegn Mjällby, 2:0, í sænsku úrvalsdeildinni í dag.
Gunnar Heiðar skoraði fyrra mark Norrköping strax á 13. mínútu en Shpetim Hasani bætti við marki í seinni hálfleik.
Ari Freyr Skúlason var einnig í byrjunarliði Sundsvall sem hafði betur gegn Häcken, 2:1.
Norrköping er í sjötta sæti sænsku úrvalsdeildarinnar en Sundsvall er í því áttunda.