Yfirlýsing þjálfara KA

Þessi leikmaður KA tengist fréttinni ekki beint.
Þessi leikmaður KA tengist fréttinni ekki beint. mbl.is/Ómar

Sævar Pétursson og Steingrímur Eiðsson knattspyrnuþjálfarar hjá 4. flokki KA hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna umfjöllunar sem hefur átt sér stað eftir að Sævar var úrskurðaður í eins mánaðar bann af KSÍ í vikunni. Sævar  fékk rautt spjald í leik Breiðabliks og KA 27. júní og eftir það var leikurinn flautaður af.

Yfirlýsing Sævars og Steingríms:

Vegna umfjöllunar sem hefur átt sér stað vegna leiks Breiðabliks og KA í 4 fl.kk þann 27.6 síðastliðinn þá viljum við koma eftirfarandi á framfæri:

Er leikmaður KA Kristján Karl Randversson fékk beint rautt spjald á 25 mín leiksins þá mótmæltu foreldrar og þjálfari KA eins og gengur og gerist enda ekki á hverjum degi sem leikmaður í yngri flokkum á Íslandi fær beint rautt spjald. Í upphafi seinni hálfleiks þá skorar Breiðablik eftir umdeilt atvik og aftur eiga sér stað mótmæli. Að þeim loknum tjáir dómari leiksins Sævari Péturssyni að hann fái rautt spjald og þurfi að yfirgefa völlinn. Sævar kemur sér fyrir þar sem foreldrar KA-drengjanna standa og hyggst horfa á leikinn þaðan en dómari leiksins krefst þess að Sævar yfirgefi það svæði. Sævar hins vegar neitar því, enda á sama stað og aðrir áhorfendur leiksins. Í framhaldi af þvi flautar dómari leiksins leikinn af. Allt tal um eitthvað ofbeldi eða ofsafengin viðbrögð, dónaskap eða þaðan af verra að leik loknum vísum við til föðurhúsanna enda búnir að vera í fótboltanum í fjölda ára og oft orðið vitni að mun verri framkomu bæði þjálfara og foreldra.

Hörmum við þessari niðurstöðu en hún verður samt ekki til að skyggja á samstarf Breiðabliks og KA sem hefur verið til fyrirmyndar.

Steingrímur Eiðsson Þjálfari KA

Sævar Pétursson Þjálfari KA

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert