Gunnar Heiðar Þorvaldsson tryggði Norrköping sigur á Kalmar, 2:1, í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag þegar hann skoraði bæði mörk liðsins.
Norrköping lenti undir í leiknum en Gunnar jafnaði metin á 62. mínútu leiksins. Hann var síðan aftur á ferðinni sjö mínútum fyrir leikslok og skoraði sigurmarkið.
Þar með lyfti Norrköping sér upp í 4. sæti deildarinnar. Elfsborg er með 31 stig á toppnum, Malmö 25, AIK 24 og Norrköping 23 stig.
Helgi Valur Daníelsson lék allan leikinn með AIK fyrr í dag þegar Stokkhólmsliðið vann Häcken, 3:1, á heimavelli.