Eiður Smári Guðjohnsen er ekki lengur leikmaður gríska liðsins AEK en á heimasíðu liðsins er tilkynnt um starfslok Eiðs Smára og honum óskað velfarnaðar í framtíðinni.
Eiður kom til AEK síðasta sumar og var búist við miklu af honum en Eiður lenti í erfiðum meiðslum og spilaði aðeins tíu leiki fyrir gríska liðið.
Eiður Smári sagður vilja 30 milljónir.