Hallgrímur Jónasson, landsliðsmaður í knattspyrnu, hefur náð sér af meiðslum sem hafa haldið honum frá keppni með SönderjyskE í fyrstu umferðum dönsku úrvalsdeildarinnar í sumar.
Hallgrímur, sem var í lykilhlutverki með liðinu á síðasta tímabili og vann sér sæti í landsliði Íslands, spilaði ekki fyrstu þrjá leikina vegna meiðsla í hné. Á vef Sönderjyske kemur fram að hann sé tilbúinn í slaginn og sé í hópnum fyrir leik liðsins gegn Horsens í úrvalsdeildinni annað kvöld.
SönderjyskE, sem einnig er með Eyjólf Héðinsson í sínum röðum, hefur byrjað vel á tímabilinu og er með sjö stig eftir fyrstu þrjá leikina.