Kolbeinn Sigþórsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, tryggði Hollandsmeisturum Ajax stig gegn sínu gamla félagi, AZ Alkmaar, í fyrstu umferð hollensku úrvalsdeildarinnar í dag.
Kolbeinn jafnaði metin fyrir Ajax á 83. mínútu, 2:2, og kom í veg fyrir óvæntan ósigur á heimavelli. Kolbeinn lék allan leikinn með Ajax og Jóhann B. Guðmundsson síðasta hálftímann með AZ.
Ajax 2-2 AZ Alkmaar by jimbrasalonso