Arnór valinn í stað Indriða

Arnór Sveinn Aðalsteinsson.
Arnór Sveinn Aðalsteinsson. mbl.is/Golli

Arnór Sveinn Aðalsteinsson, leikmaður norska úrvalsdeildarliðsins Hönefoss, hefur verið valinn í íslenska landsliðshópinn í knattspyrnu fyrir leikina gegn Noregi og Kýpur í undankeppni HM.

Arnór kemur í staðinn fyrir Indriða Sigurðsson, fyrirliða Viking Stavanger í Noregi, sem er meiddur og verður frá keppni næstu 6-8 vikurnar, eins og áður hefur komið fram.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert