Aron Jóhannsson, framherji AGF í dönsku úrvalsdeildinni, heldur áfram að skora en hann setti tvö mörk í sigri liðsins gegn Silkeborg, 4:0, í dag.
Aron, sem skoraði fernu í síðustu umferð, var búinn að skora eftir ellefu mínútur í dag og hann bætti við öðru marki sínu og þriðja marki AGF á 45. mínútu. Hann var svo tekinn af velli á 52. mínútu leiksins.
Bjarni Þór Viðarsson var í byrjunarliði Silkeborg en var tekinn af velli í hálfleik.