Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mætir Norður-Írlandi í dag í undankeppni EM 2013 en með sigri tryggir íslenska liðið sig í umspil um sæti í lokakeppninni.
Sigur leggur líka upp úrslitaleik gegn Noregi ytra á miðvikudaginn um farseðil beint á EM 2013 þannig þrjú stig í dag eru afskaplega mikilvæg.
Leikurinn hefst klukkan 16.15 og verður í beinni textalýsingu á mbl.is.
Bæði stelpurnar og starfsfólk Laugardalsvallar hafa verið í stífum undirbúningi en eins og strákarnir um daginn fóru stelpurnar á skyndihjálparnámskeið.
Myndirnar hér að ofan eru frá Knattspyrnusambandi Íslands.