Þau voru þung sporin hjá fyrirliðanum Katrínu Jónsdóttur af Ullevaal vellinum eftir ósigurinn gegn Norðmönnum í kvöld.
„Ég er afar vonsvikin því mér fannst við vera betra liðið og hefðum átt skilið í það minnsta annað stigið,“ sagði Katrín við mbl.is eftir leikinn.