Gunnar Heiðar Þorvaldsson, knattspyrnumaður frá Vestmannaeyjum, skoraði tvö mörk í kvöld þegar Norrköping vann stórsigur á GAIS, 7:2, í sænsku úrvalsdeildinni.
Gunnar skoraði fyrsta markið á 12. mínútu og kom liði sínu síðan í 6:1 um miðjan síðari hálfleik. Hann lék allan leikinn.
Norrköping er í 5. sæti deildarinnar með 40 stig þegar fimm umferðum er ólokið.