Lionel Messi náði þeim áfanga í gær að skora sitt 300. mark á ferlinum þegar hann setti tvö af mörkum Börsunga í 5:0-sigri gegn Rayo Vallecano.
Fyrra mark Messis í leiknum var hans 300. í röðinni en argentínski snillingurinn hefur skorað 270 mörk fyrir Barcelona og 31 fyrir Argentínu. 301 mark í 419 leikjum. Frábær tölfræði það hjá Messi, sem hefur skorað 73 mörk á þessu ári. Brasilíumaðurinn Pele afrekaði að skora 75 mörk fyrir brasilíska landsliðið og Santos árið 1959 en metið á Þjóðverjinn Gerd Müller sem skoraði 85 mörk fyrir Bayern München og þýska landsliðið árið 1972.