Dregið var í 32-liða úrslit Evrópudeildarinnar í knattspyrnu í Sviss klukkan 13 í dag. Íslendingaliðin Ajax og Tottenham fengu Steaua og Lyon.
Einnig var dregið í 16-liða úrslit og svo gæti farið að Gylfi Þór Sigurðsson og samherjar í Tottenham mæti þar ítalska stórliðinu Inter og Kolbeinn Sigþórsson og félagar í Ajax gætu þá spilað á móti Chelsea að því gefnu að öll þessi lið komist í gegnum 32-liða úrslitin.
Eftirtalin lið mætast í 32-liða úrslitum:
BATE Borisov - Fenerbache
Inter Mílanó - CFR Cluj
Levante - Olympiacos
Zenit St. Pétursborg - Liverpool
Dynamo Kiev - Bordeaux
Leverkusen - Benfica
Newcastle - Metalist Kharkiv
Stuttgart - Genk
Atlético Madrid - Rubin Kazan
Ajax - Steaua Búkarest
Basel - Dnipro
Anzhi Makhachkala - Hannover
Sparta Prag - Chelsea
Mönchengladbach - Lazio
Tottenham - Lyon
Napoli - Viktoria Plzen
Þannig líta 16-liða úrslitin út:
Napoli/Plzen - BATE/Fenerbache
Leverkusen/Benfica - Dynamo Kiev/Bordeaux
Anzhi/Hannover - Newcastle/Metalist
Stuttgart/Genk - Gladbach/Lazio
Tottenham/Lyon - Inter/Cluj
Levante/Olympiacos - Atlético Madrid/Rubin
Basel/Dnipro - Zenit/Liverpool
Ajax/Steaua - Sparta Prag/Chelsea
Kl 13:10 Úrslitaleikur keppninnar fer fram í Amsterdam hinn 15. maí 2013. Hollendingurinn Patrick Kluivert er sérstakur sendiherra úrslitaleiksins og hann mun sjá um að draga liðin sem mætast í 32- liða úrslitum. Hann þekkir sig vel í Amsterdam en hann var í liði Ajax sem sigraði í Meistaradeildinni árið 1995.
Kl 13:00 Íslendingaliðin Tottenham og Ajax eru í pottinum að þessu sinni en þau eru með Gylfa Þór Sigurðsson og Kolbein Sigþórsson innanborðs.
Kl 12:50 Atletico Madrid sigraði í keppninni síðasta vor og liðið er nú í pottinum en framherjinn skæði Falcao hefur unnið keppnina tvö ár í röð því hann var í röðum Porto sem vann 2011.