Tap hjá SönderjyskE sem er í fallsæti

Eyjólfur Héðinsson og Hallgrímur Jónasson á góðri stundu.
Eyjólfur Héðinsson og Hallgrímur Jónasson á góðri stundu. Ljósmynd/Heimasíða SönderjyskE

SönderjyskE með Hallgrím Jónasson í byrjunarliðinu tapaði fyrir Midtjylland, 2:0, á heimavelli í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Rilwan Hassan skoraði bæði mörk gestanna á 2. og 88. mínútu leiksins en SönderjyskE er eftir tapið með 24 stig í ellefta og næstneðsta sæti deildarinnar.

Eyjólfur Héðinsson var einnig í leikmannahópi SönderjyskE í dag en var ónotaður varamaður.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert