Guðjón skoraði í Stokkhólmi

Guðjón Baldvinsson og Kristinn Steindórsson.
Guðjón Baldvinsson og Kristinn Steindórsson. Ljósmynd/HBK

Framherjinn Guðjón Baldvinsson skoraði eitt marka Halmstad þegar liðið gerði 3:3-jafntefli við AIK í Stokkhólmi í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Guðjón skoraði á 59. mínútu og jafnaði þá í 2:2 en Halmstad hefur ekki tekist að landa sigri í fyrstu sex leikjum sínum í deildinni.

Kristinn Steindórsson var einnig í byrjunarliði Halmstad og lék í 72 mínútur. Helgi Valur Daníelsson spilaði allan leikinn með AIK.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert