Mist kom Avaldsnes á bragðið

Mist Edvardsdóttir.
Mist Edvardsdóttir. Ljósmynd/Algarvephotopress

Mist Edvardsdóttir skoraði fyrsta mark Avaldsnes þegar liðið gerði 4:4 jafntefli á móti Trondheims Örn í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Mist, markvörðurinn Guðbjörg Gunnarsdóttir og Þórunn Helga Jónsdóttir spiluðu allan tímann fyrir Avaldsnes en Hólmfríður Magnúsdóttir lék ekki með liðinu af persónulegum ástæðum.

Avaldsnes er þá komið með 4 stig eftir fyrstu fjóra leiki sína í deildinni en félagið er nú í fyrsta skipti í úrvalsdeildinni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert