Laskaðir meistarar lentir í Vín

FH-ingar komu farangurslausir til Vínar.
FH-ingar komu farangurslausir til Vínar. mbl.is/Eggert

Íslandsmeistarar FH mæta austurríska meistaraliðinu Austria frá Vín í Vínarborg í dag klukkan 16.00 að íslenskum tíma.

Leikurinn er sá fyrri hjá liðunum í einvígi liðanna í 3. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu en sigurliðið fer áfram í umspil um sæti í riðlakeppni sterkustu deildar heims; Meistaradeildarinnar.

Fall er vonandi fararheill hjá FH-ingum sem lentu í Vín í gær en þegar þangað var komið kom í ljós að farangur meistaranna varð eftir í Leifsstöð og þurftu menn því að bjarga nýjum æfingagöllum á leikmenn liðsins.

Sjá forspjall um leik FH og Austria í heild í íþróttablaði Morgunblaðsins sem út kom í morgun.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert