Landsliðsmaðurinn Ari Freyr Skúlason er í liði 6. umferðar í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu hjá danska blaðinu Tipsbladet fyrir frammistöðu sína með OB í leiknum gegn Nordsjælland á sunnudaginn.
Ari Freyr og félagar höfðu betur í leiknum, 1:0, og eru í fjórða sæti deildarinnar eftir fjórar umferðir.
Ari er liði vikunnar sem miðjumaður en hann hefur leikið inni á miðjunni hjá danska liðinu en hjá sænska liðinu Sundsvall sem hann var í nokkur ár lék hann stöðu vinstri bakvarðar líkt og hann hefur gert með íslenska landsliðinu.