KSÍ auglýsir á vef sínum miða til sölu á síðari viðureign Króatíu og Íslands í umspili um sæti á HM sem fram fer í Zagreb þann 19. nóvember.
KSÍ hefur fengið miða hjá króatíska knattspyrnusambandinu fyrir íslenska áhorfendur og kostar miðinn 5.500 krónur. Panta þarf miða í síðasta lagi miðvikudaginn 6. nóvember að því er fram kemur á vef KSÍ.
Sendið tölvupóst á Ragnheiði Elíasdóttur (ragnheidur@ksi.is) með eftirfarandi upplýsingum:
Einnig er hægt að leggja inn á reikning: Kennitala: 700169-3679 - Reikningsnúmer: 101-26-700400 og sendið afrit af greiðslukvittun á: ragnheidur@ksi.is.
Miðar eru afhentir/sendir eftir 6. nóvember.