Kári Árnason lék allan leikinn í vörn Rotherham sem komst áfram í FA-bikarnum á Englandi með 3:0 sigri á Bradford.
Kári lét vel til sín taka og fékk meðal annars gult spjald í uppbótartíma fyrri hálfleiks.
Björn Bergmann Gunnlaugsson sat allan tímann á varamannabekk Wolves sem gerði 1:1 jafntefli við Oldham í sömu keppni. Þurfa liðin því að mætast aftur til þess að knýja fram úrslit í viðureigninni.