Rúrik skoraði og tryggði jafntefli

Rúrik var á skotskónum í dag.
Rúrik var á skotskónum í dag. AFP

Rúrik Gíslason tryggði FC Köbenhavn 1:1-jafntefli þegar liðið mætti Esbjerg á útivelli í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu dag. Rúrik skoraði markið á 69. mínútu eftir að Esbjerg hafi komist yfir snemma leiks.

Rúrik spilaði allan leikinn ásamt Ragnari Sigurðssyni sem var að vanda í vörn Kaupmannahafnarliðsins, sem situr nú í þriðja sæti deildarinnar, níu stigum á eftir toppliði Midtjylland.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert