Adam Örn Arnarson 18 ára knattspyrnumaður sem var á mála hjá unglingaliði NEC Nijmegen í Hollandi hefur samið við danska úrvalsdeildarliðið Nordsjælland.
Adam sem kemur upphaflega frá Breiðabliki mun hitta fyrir fyrrverandi þjálfara meistaraflokks Blika hjá Nordsjælland, því Ólafur Kristjánsson er þjálfari danska liðsins.
Hjá Nordsjælland mun Adam Örn einnig hitta fyrir markvörðinn Rúnar Alex Rúnarsson sem gekk í raðir danska liðsins frá KR snemma á þessu ári.