Spænski miðvallarleikmaðurinn Xabi Alonso er á leið til þýsku meistarana í Bayern München frá Evrópumeisturum Real Madrid.
Félögin hafa náð samkomulagi um félagaskiptin en Alonso hefur leikið með Real Madrid frá árinu 2009 en hann var áður í herbúðum Liverpool.
Alonso er 32 ára gamall sem í gær tilkynnti að hann gefi ekki lengur kost á sér í spænska landsliðið en hann lék 114 leiki fyrir þjóð sína og skoraði 16 mörk.
Hann varð Evrópumeistari með Spáni 2008 og 2012 og heimsmeistari 2010. Hann lék sinn fyrsta landsleik fyrir Spán árið 2003.
Xabi Alonso lék síðast með spænska landsliðinu á HM í Brasilíu í sumar, þar skoraði hann meðal annars eina mark Spánar gegn Hollandi í 5:1-sigri Hollands í 1. umferð riðlakeppninnar.