Hollendingar án Pieters

Erik Pieters (t.h.), varnarmaður Stoke.
Erik Pieters (t.h.), varnarmaður Stoke. AFP

Hollendingar verða án varnarmannsins Erik Pieters, varnarmanns Stoke City í leiknum gegn Íslandi á morgun en hann hefur þó ekki spilað í fyrstu tveimur leikjum liðsins í riðlinum. Þetta kemur fram í hollenskum fjölmiðlum. 

Þá kemur markvörður Newcastle, Tim Krul ekki með til Íslands vegna meiðsla en það mun ekki koma til með að breyta miklu þar sem hann hefur verið á varamannabekknum. Kenneth Vermeer markvörður Feyenoord tekur hans sæti. 

Hollendingar verða einnig án Georginio Wijnaldum, leikmanni PSV Eindhoven. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert