Rúnar: Elska þetta félag

Rúnar Kristinsson.
Rúnar Kristinsson. mbl.is/Golli

Rúnar Kristinsson skrifaði nú rétt í þessu undir þriggja ára samning við norska úrvalsdeildarliðið Lilleström.

Samningur Rúnars tekur gildi þann 1. janúar á næsta ári og fram kom á fréttamannafundi sem nú stendur yfir í höfuðstöðum við Lilleström að ekki liggur enn ljóst fyrir hver verður aðstoðarmaður Rúnars.

„Það er góð tilfinning að vera kominn aftur til Lilleström. Þetta er félag sem ég elska. Ég hef fylgst með því síðustu árin og nú fæ ég tækifæri til að þjálfa það. Þetta er stórt skref fyrir mig og ég er virkilega ánægður,“ sagði Rúnar á fréttamannafundinum í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert