Á morgun mun aganefnd spænska knattspyrnusambandsins ákveða refsingu Portúgalans Cristiano Ronaldo en hann fékk að líta rauða spjaldið í viðureign Real Madrid og Cordoba um síðustu helgi.
Að því er fram kemur í spænska blaðinu Mundo Deportivo á Ronaldo það á hættu að verða úrskurðaður í tólf leikja bann en Ronaldo byrjaði á því að sparka í einn leikbann Cordoba og sló svo til annars í andlitið.