Hjörtur Hermannsson er í leikmannahópi aðalliðs PSV Eindhoven en liðið sækir Breda heim í hollensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.
Hjörtur hefur spilað með varaliði félagsins en eins og Morgunblaðið greindi frá á dögunum hefur PSV boðið Hirti nýjan samning til þriggja ára.
Hjörtur, sem er 19 ára gamall, kom til PSV frá Fylki sumarið 2012.