Emil valinn maður leiksins (myndband)

Emil Hallfreðsson.
Emil Hallfreðsson. Ljósmynd/hellasverona.it

Emil Hallfreðsson var maður leiksins að mati ítalska netmiðilsins forzaitalianfootball þegar Hellas Verona lagði Napoli, 2:0, í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu í kvöld.

Emil, sem lagði upp seinna mark sinna manna eftir góðan sprett upp vinstri kantinn, fékk 7 í einkunn fyrir frammistöðu sína sem og Luca Toni en hann skoraði bæði mörk Verona í leiknum.

Emil hefur átt mjög góðu gengi að fagna með liði Verona á leiktíðinni og er einn af lykilmönnum liðsins en hann hefur verið iðinn við að leggja upp mörk í síðustu leikjum og ekki síst fyrir Luca Toni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert