Victor í landsliðinu gegn Kasakstan

Guðlaugur Victor Pálsson.
Guðlaugur Victor Pálsson. mbl.is/Golli

Guðlaugur Victor Pálsson, leikmaður Helsingborg, er í íslenska landsliðshópnum í knattspyrnu sem mætir Kasakstan í undankeppni EM laugardaginn 28. mars, í Astana, ef marka má frétt á vef sænska félagsins.

Victor lék sinn fyrsta og eina A-landsleik til þessa í júní á síðasta ári þegar Ísland mætti Eistlandi í vináttulandsleik á Laugardalsvellinum en var ekki í hópnum í EM-leikjunum fjórum í haust. Hann kom til liðs við Helsingborg frá NEC Nijmegen í Hollandi síðasta sumar og hefur átt góðu gengi að fagna með sænska liðinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert