Eggert Gunnþór Jónsson leikmaður danska úrvalsdeildarliðsins Vestsjælland er í liði vikunnar í fyrsta sinn hjá danska blaðinu Tipsbladet.
Eggert átti fínan leik á miðjunni þegar Vestsjælland lagði Hobro á útivelli, 1:0, en Eskfirðingurinn gekk í raðir félagsins í janúar og hefur spilað 10 leiki í deildinni.
Þegar fjórar umferðir eru eftir af dönsku úrvalsdeildinni ern Vestsjælland í næst neðsta sæti eða í fallsæti og er fimm stigum á eftir SönderjyskE.