Eins og fram hefur komið mun Zlatan Ibrahimovic snúa aftur til Malmö með PSG og mæta þar Kára Árnasyni og félögum í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.
„Það verður gaman fyrir Zlatan að koma aftur heim og frábært fyrir stuðningsmennina að sjá hann og hinar stjörnurnar,“ sagði Olof Persson, aðstoðarþjálfari Malmö. Zlatan hó ferilinn hjá félaginu en fór þaðan árið 2001 og hefur átt glæsilegan feril síðan.
„Hann verður boðinn velkominn heim eins og honum er alltaf tekið – sem konungi Malmö.“