Alfreð Finnbogason skoraði í sínum fyrsta leik í Meistaradeild Evrópu þegar hann kom Olympiacos í 3:2 gegn Arsenal í leik liðanna í annarri umferð riðlakeppninnar í Meistaradeildarinni í kvöld.
Alfreð, sem er á láni frá Real Sociedad hjá Olympiacos, kom inná sem varamaður í hálfleik en hann kom Olympiacos í 3:2 með marki sínu á 66. mínútu.
Hægt er að sjá markið hér fyrir neðan, en þetta er jafnfram fyrsta mark hans í keppnisleik fyrir liðið.
Gol de Finnbogason vs Arsenal. Olympiakos gana 3-2 en el Emirates https://t.co/iStwWVRAJC
— SuperChip (@SuperChip_) September 29, 2015