Aron Sigurðarson skoraði mark Tromsö í fyrsta leik sínum í norku úrvalsdeildinni í knattspyrnu þegar liðið gerði 1:1 við Eið Smára Guðjohnsen og félaga hans hjá Molde í fyrstu umferð norsku úrvalsdeildarinnar í dag.
Aron Sigurðarson lék allan leikinn fyrir Tromsö og skoraði jöfnunarmark liðsins á 70. mínútu leiksins. Eiður Smári var hins vegar í byrjunarliði Molde, en var tekinn af velli á 66. mínútu leiksins.
Mark Arons má sjá í myndskeiðinu hér að neðan.
What a debut for @AronSig with @TromsoIL in @tippeligaen_no vs. @Molde_FK. Levels the game, 1-1. #TeamTotalFootball pic.twitter.com/JuX6HaCTV4
— Total Football (@totalfl) March 13, 2016