Skoski vængmaðurinn Jamie Walker sem leikur með skoska liðinu Hearts var á dögunum úrskurðaður í tveggja leikja bann fyrir háttsemi sína í leik liðsins um helgina.
Aga- og úrskurðarnefnd skoska knattspyrnusambandsins mat það sem svo að Walker hefði sýnt leikræna tilburði þegar hann krækti í vítaspyrnu í 2:1 sigri liðsins gegn Celtic í fyrstu umferð skosku efstu deildarinnar í knattspyrnu karla um nýliðna helgi.
Hearts hefur áfrýjað þessum úrskurði og málið verður tekið fyrir af dómstóli skoska knattspyrnusambandsins á fimmtudaginn.