Björn Bergmann Sigurðarson skoraði síðara mark Molde þegar liðið vann 2:0 útisigur gegn Strømsgodset í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.
Þetta var fjórði sigur Molde í röð í deildinni og Björn Bergmann hefur heldur betur breytt gengi liðsins en frá því hann kom til liðsins hefur hann skorað 3 mörk í þeim fjórum leikjum sem hann hefur spilað með liðinu.
Molde er í 5. sæti deildarinnar með 37 stig en meistarar Rosenborg tróna á toppnum með 50 stig og fátt sem getur komið í veg fyrir að liðið verði meistari enn eitt árið.