Árni Vilhjálmsson hefur skrifað undir samning við sænska úrvalsdeildarfélagið Jönköping Södra og er samningsbundinn til loka tímabilsins 2019. Hann er fimmti Íslendingurinn sem spilar með liðinu og sá fyrsti í 37 ár.
Árni hefur verið í röðum Lillestrøm í Noregi undanfarin tvö ár en var í láni hjá uppeldisfélagi sínu Breiðabliki síðari hluta síðasta tímabils og gerði þá 6 mörk í 12 leikjum.
„Jönköping Södra sýndi mér áhuga og þjálfararnir sannfærðu mig um að þetta væri rétt skref. Fyrir mig er þetta betri möguleiki en Lillestrøm, þar sem liðið spilar bolta sem hentar mér betur. Ég vil bæta mig hér sem leikmaður og hjálpa liðinu með mínum hæfileikum,“ sagði Árni á heimasíðu félagsins.
Jönköping Södra var nýliði í úrvalsdeildinni í fyrra, lék þá í deildinni í fyrsta sinn í hálfa öld, og endaði í 12. sæti af sextán liðum. Fjórir Íslendingar hafa leikið með félaginu, allir á árunum 1977-1980 þegar Jönköping lék í næstefstu deild. Það voru framherjinn Teitur Þórðarson, varnarmaðurinn Jón Pétursson og markverðirnir Árni Stefánsson og Ársæll Sveinsson.