Hjörtur Hermannsson lék allan tímann í hjarta varnarinnar hjá Brøndby sem gerði markalaust jafntefli við FC Kaupmannahöfn í dönsku deildinni í knattspyrnu í dag.
Kaupmannahöfn er í efsta sæti deildarinnar, ellefu stigum á undan Brøndby sem er í 2. sæti og var því um toppslag að ræða.
Hjörtur er búinn að standa sig ansi vel með Brøndby á leiktíðinni og er hann fastamaður í liðinu.