Brasilíumaðurinn Neymar er nærri því að ganga í raðir París SG frá Barcelona á metupphæð. En af hverju er hann að yfirgefa Börsunga þar sem hann hefur staðið sig frábærlega og unnið hvern titilinn á fætur öðrum? Það gæti verið vegna Lionel Messi.
Þetta er meðal þess sem spænski miðillinn El Pais veltir fyrir sér og bendir á að vendipunkturinn gæti hafa verið í mars eftir að Neymar sýndi eina bestu frammistöðu ferils síns á knattspyrnuvellinum.
Barcelona mætti þá Parísarliðinu í Meistaradeildinni sem endaði í einni mögnuðustu endurkomu keppninnar. Eftir að hafa verið í vondum málum skoraði Barcelona þrjú mörk á síðustu sjö mínútunum og vann að lokum ótrúlegan 6:5-sigur.
Arkitektinn í endurkomunni var Neymar, en hann skoraði tvö af mörkunum og lagði upp það þriðja. En þrátt fyrir það var það Messi sem átti athyglina eftir leikinn og myndin hér að neðan fór sem eldur í sinu í fjölmiðlum. Neymar hafi átt ótrúlegan leik, en samt stæði hann í skugga Messi.
PSG þarf að greiða 222 milljónir evra, 27,4 milljarða króna, til að leysa hann undan samningi. Samkvæmt BBC fær hann 865 þúsund evrur í vikulaun og samtals 45 milljón evrur í árslaun og heildarkostnaður PSG vegna kaupanna og launa hans mun nema 450 milljón evrum.