Þetta var ótrúlegt mark

Ronald Koeman var hrifinn af markinu hans Gylfa.
Ronald Koeman var hrifinn af markinu hans Gylfa. AFP

Ronald Koeman, knattspyrnustjóri Everton, hrósaði Gylfa Þór Sigurðssyni í viðtali eftir leik liðsins gegn Hajduk Split í Evrópudeildinni í kvöld. Gylfi skoraði eina mark Everton í 1:1-jafntefli með stórbrotnu marki af um 45 metra færi. Markið kom strax í upphafi síðari hálfleiks. 

„Ég sá markið en ekki allir á bekknum sáu það. Þetta var ótrúlegt mark, ég veit ekki hvað ég get sagt meira. Þú verður að vera mjög sniðugur að sjá þennan möguleika. Þetta er líklegast mark tímabilsins, þó að það sé lítið búið. Það var mjög mikilvægt að ná jöfnunarmarkinu svona snemma í síðari hálfleik,“ sagði Koeman um markið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert